Rafrænar ferilmöppur

Ég flutti stuttan fyrirlestur í Kennaraháskóla Íslands í dag um rafrænar ferilmöppur. Þessi kynning var ætluð nemendum á kennsluréttindabraut sem eru að útskrifast nú um áramót. Meðal námskeiða á lokaönn er samfélag nemendahópa ásamt leiðsögumanni um gerð ferilmöppu sem á að innihalda starfskenningu nemandans. Read more »

Álitaefni

Ég er þessa dagana að kenna í KHÍ, ásamt öðru góðu fólki, á námskeiði í fjarkennslu og hef auk þess umsjón með þvi. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem litla reynslu hafa af fjarkennslu og er dagskráin með blöndu af kennslutæknilegu og kennslufræðilegu efni. Read more »

Mörg kerfi í KHÍ??

Töluverð umræða er jafnan um sundurleitan búnað í fjarkennsluháttum hér við skólann og þær raddir sterkar, sérstaklega meðal þeirra sem eru að hefja fjarnám, að það vanti meiri einsleitni í almenna tækniumgjörð námsins. Ég er sammála þessum viðhorfum að því leyti að ég tel að við eigum að temja okkur að nota einsleitar aðferðir eftir því sem við verður komið vegna grunvallarþátta í náminu og kennslunni. Einnig finnst mér mikilvægt að sem allra flestir þættir Netnotkunar komi saman í einni miðju, þ.e. í sjálfu námskerfinu ef ég má orða það svo.  Hvað kennarar og nemendur gera þar sem notkun upplýsingatækni er á dagskrá í námi og kennslu gilda aftur á móti allt önnur lögmál. Read more »

Að blogga í þágu skólastarfs

Sjálfur er ég ekki áhugasamur bloggari, sérstaklega ekki um almenn dægurmál. Ég tel mig þó ekki hafa neina sérstaka fordóma gagnvart þessari vinsælu iðju fjölmargra Netnotenda. Helsta markmið mitt með því að setja þennan vef upp er einfaldlega að velta vöngum yfir því hvort vefumsjónarkerfi af þessu tagi gæti e.t.v. hentað, skjólstæðingum mínum, kennurum í Kennaraháskóla Íslands. Read more »