Mörg kerfi í KHÍ??
Greinasafn August 15th. 2007, 8:24pmTöluverð umræða er jafnan um sundurleitan búnað í fjarkennsluháttum hér við skólann og þær raddir sterkar, sérstaklega meðal þeirra sem eru að hefja fjarnám, að það vanti meiri einsleitni í almenna tækniumgjörð námsins. Ég er sammála þessum viðhorfum að því leyti að ég tel að við eigum að temja okkur að nota einsleitar aðferðir eftir því sem við verður komið vegna grunvallarþátta í náminu og kennslunni. Einnig finnst mér mikilvægt að sem allra flestir þættir Netnotkunar komi saman í einni miðju, þ.e. í sjálfu námskerfinu ef ég má orða það svo. Hvað kennarar og nemendur gera þar sem notkun upplýsingatækni er á dagskrá í námi og kennslu gilda aftur á móti allt önnur lögmál.
Ég svaraði gagnrýni sem kom um þetta efni á Elgg og leyfi mér að birta greinina hér óbreytta til að útskýra betur hvað við er átt og einnig hvernig þessi mál snúa að okkur hér í smiðju Kenanraháskólans sem rekum ýmis kerfi og veitum þjónustu við þau með tilteknum skilyrðum.
Ég hef aðeins fylgst með umræðu á Elgg, sérstaklega í tengslum við námskeiðið, “Kennarinn í starfi” sem kennt er í KHÍ á vorönn 2007. Þar er nokkuð kvartað undan mörgum kerfum í tengslum við fjarnámið. Þetta er áhugaverð umræða en á köflum finnst mér hún svolítið sérkennileg.
Opinberlega styður Kennaraháskólinn eftirfarandi kerfi:
- Ugla er alsherjar upplýsingakerfi sem allir nemendur og starfsmenn hafa aðgang að og fer það eftir réttindum hvers og eins, hvað birtist á forsíðu notenda. Þetta er sama upplýsingakerfið og notað er í Háskóla Íslands. Einhver taldi farsælast að eitt kerfi gæti sameinað sem flesta notendaþætti og í mínum huga stendur Ugla ágætlega undir væntingum í því efni og vísast minna en tuttugu mínútna verk að kynna sér það helsta sem réttilega er oft notað sem viðmið um góðan notendahugbúnað. Ugla er ekki bara upplýsingakerfi, hún er líka náms- og kennslukerfi en þá erum við einungis að tala um staðbundið nám. Kennarar geta m.a. miðlað kennsluefni eftir námskeiðum og notendur geta einnig nálgast allar sínar skrár af innra neti skólans hvaðan sem er, svo fremi að þeir séu nettengdir. Margt fleira mætti tína til sem telja má til sérstakra þæginda.
- Í mínum huga er Ugla ekki fjarkennslukerfi og getur eiginlega aldrei orðið það. WebCT er hið opinbera fjarkennslukerfi skólans og öll fjarnámskeið eru sjálfkrafa stofnuð þar. Það er svo í valdi kennara hvort og hvernig þeir nýta það. Allir kennarar hafa aðgang að sérstöku þjónustuborði með yfirgripsmiklum leiðbeiningum um notkun WebCT og á vef skólans má finna yfirlýsingu frá Menntasmkiðju um það hvernig námskeið í WebCT þarf að líta úr í upphafi fyrstu staðlotu og hvaða grunnkröfur eru gerðar um tæknigetu kennara hvað kerfið varðar. Spyrja má af hverju ekki megi bara nota Uglu líka fyrir fjarnámið eða af hverju Ugla er ekki einnig þróuð sem fjarkennslukerfi. Svarið við þessu er raunar einfalt. Í þann hlutann af Uglu sem flokka má undir kennslukerfi fara líklega 2-5 mannmánuðir á ári en yfir 100 manns starfa allt árið að þróun og viðhaldi WebCT og er hér einungis átt við forritara. Þessi kerfi geta því vísast aldrei orðið samanburðarhæf og geta í mínum huga vart orðið að einu kerfi. Einhverjir myndu nú mótmæla þessu og benda t.d. á MySchool , alíslenskt kerfi sem er hvorutveggja í senn, upplýsingakerfi og kennslukerfi. Það er á hinn bóginn ekki fullnægjandi sem fjarkennslukerfi…… ekki að mínu viti. Yfir 50% af öllu námi við Kennaraháskóla Íslands er fjarnám og það verður að gera tæknikröfur í samræmi við það. Eitt er kennsla og annað fjarkennsla a.m.k enn sem komið er og það hlýtur að kalla á sérlausnir án nokkurs afssláttar.
- Rauntímakennsla er það kallað þegar kennsla fer fram óháð stað en á sama tíma og styðjum einnig sérlausnir í því efni. Horizon Wimba er slíkt kerfi (nánar ef krækjan er opnuð).
- Önnur kerfi í fyrir utan að allir nemendur og kennarar hafa vefaðgang eru fyrst og fremst notuð í tilrauna- og þróunarverkefnum. Í námskeiðum þar sem upplýsingatækni kemur við sögu er t.d. verið að prófa ýmis kerfi og eiginlega fráleitt að það sé ekki bara sjálfsagt og eðlilegt. Þannig er Moodle notað í nokkrum námskeiðum, m.a. til leiðsagnar um notkun náms- og kennslukerfa í skólastarfi þar sem ekki eru tök á að kaupa aðgang að svo dýru kerfi sem WebCT er. Í vetur er verið að prófa Elgg sem er rafræn ferilmappa og eins konar netsamfélag til viðbótar. Mér finnst hins vegar af og frá að kalla Elgg náms- og kennslukerfi enda vonlaust að það geti leyst þau af hólmi. Ýmis náms- og kennslukerfi hafa aftur á móti innbyggða ferilpöppu sem mér finnst afar áhugavert. Þannig þarf ekki nema eitt músarklikk til að gera margvíslegt efni, verkefni, og þátttöku í umræðu (svo eitthvað sé nefnt) aðgengilegt í ferilmöppunni, óháð einstökum námskeiðum. WebCT býður raunar þennan kost, hann er bara alltof dýr sem stendur en það er svo aftur efni í algerlega nýjan pistil.
Mér dettur helst í hug að gera Netskólann að niðurlagsorðum hér sem er alíslenskt þrekvirki og tekur m.a. sérstakelga mið af skólastarfi í grunnskólum. Þetta er svokallað fjölstofnana kerfi (Multi-Institutions) og tekur… einfaldlega á öllum pakkanum!.. vefur fyrir skóla, opið skólastarf (m.a. klúbbastarf portfolio o.m.fl.), samskipti heimila og skóla og að lokum bekkjarstarf í lokuðu aðgangsstýrðu umhverfi. Þess má til gamans geta að stofnun í Netskólanum, Íslenskuskólinn sem er fjarkennsluskóli fyrir íslensk börn búsett erlendis, er eina verkefnið sinnar tegundar hér á landi sem komst í topp 100 í Learning awards 2006. Fróðlegt er að fylgjast með hvernig því reiðir af og að lokum finnst mér að nemendur í upplýsingatækni í Kennaraháskóla Íslands ættu frekar að kvarta undan of fáum kerfum til að prófa en of mörgum.
Ég er sammála þér með Ugluna að hún er ekki námskerfi og á ekki að vera það. Meginástæðu þess tel ég eins og þú að það er gríðarlegur kostnaður að þróa slíkt kerfi og engin ástæða fyrir HÍ/KHÍ að standa í slíku þegar fjölmörg frambærileg finnast bæði íslensk og erlend.
Á hinn bóginn hafa ýmisr þættir kennslukerfa ratað í Ugluna þannig að hún er að skarast dálítið við námskerfi eins og WebCT, t.a.m. umræður og tilkynningar.