Ég flutti stuttan fyrirlestur í Kennaraháskóla Íslands í dag um rafrænar ferilmöppur. Þessi kynning var ætluð nemendum á kennsluréttindabraut sem eru að útskrifast nú um áramót. Meðal námskeiða á lokaönn er samfélag nemendahópa ásamt leiðsögumanni um gerð ferilmöppu sem á að innihalda starfskenningu nemandans.

Í fyrirlestirnum voru kynntir þeir kostir sem eru í boði af hálfu skólans fyrir þá sem áhuga hafa á að gera rafræna ferilmöppu. Þá voru ýmsir aðrir kostir kynntir hvað þetta varðar og gerð tilraun til að útskýra muninn á því sem kallað er Vefur 1 og Vefur 2 í Netheimum . Ég er ekki viss um að mér hafi tekist þetta neitt sérlega vel og bendi eins og margir á frábæran myndbandsbút á YouTube sem segir raunar allt sem segja þarf um þróun Vefsins frá 1996 til dagsins í dag.
Ég leyfði mér í upphafi að nefna til sögunnar, amerískan snilling, Guy Kawasaki sem m.a. hefur skrifað bókina “The Art to the Start” Ég er að hugsa um að kaupa þessa bók, aldrei og seint að byrja þótt ýmsum kynni að finnast ég hafa fe.t.v. fullseint í rassinn gripið. Bloggvefur Kawasaki heitir hvorki meira né minna en “How to Change the World” Þeir sem kunna “að byrja” og geta því ekki hugsað sér að kaupa bókina, ættu þó að gefa eftir svo sem eina klukkustund af amstri dagsins í að hlusta á fyrirlestur Kawasaki “The Art of Innovation” Mér fannst þessi flutningur ekki aðeins skemmtilegur heldur einnig, frumlegur og um margt fróðlegur. Ræðumaður er reyndar ekki úr röðum menntunar- og kennslufræðinga, hann kemur úr viðskiptaheiminum, var t.d. einn af frumkvöðlum “Apple -undursins” sem líklega er fyrirmynd hins myndræna tölvuviðmóts og raunar sjálfs Vefsins. Ég minnist í þessu samhengi fyrirlitningar hámenntaðra tölvunarfræðinga og forritara í kringum 1990, á fyrirbærinu “mús” sem menn notuðu til að smella á einhver tákn á skjánum. Þeir töldu þetta vera fyrir viðvaninga og ekki tölvunarfræðingum sæmandi.
Hvað hefur viðskiptajöfur að segja við okkur sem sinnum námi og kennslu? Ég held að það geti verið ýmislegt. Er mótun starfskenningar ekki eitthvað í ætt við markaðssetningu? Þetta er þó ekki hefðbundin markaðssetning þar sem veraldlegur auður er í öndvegi. Kawasaki, þótt auðmaður sé, leggur einmitt sérstaka áherslu að framlög okkar til að bæta heiminn verði almennt ekki metin til fjár. Mér varð þó á að reyna að reikna út virði fyrirlestursins um rafrænar ferilmöppur í samanburði við kaupgetu meðal bankastjóra í eina klukkustund. Niðurstaðan var sú, og er þó varlega reiknað, að ég þyrfti að flytja, með undirbúningi og öllu sem fylgir og fylgja ber, a.m.k 625 fyrirlestra til að ná tímakaupi bankastjórans. Og ég hugsaði sem svo: “Hvað á þetta eiginlega að þýða að leggja fyrir sig svona nám?” Mér rann þó móðurinn þegar ég skoðaði sýnidæmi - ferilmöppu Guðnýjar Þorsteinsdóttur eftir þátttöku hennar í námskeiðinu Leikir í skólastarfi. Námskeiðinu stýrði dr. Ingvar Sigurgeirsson prófessor við Kennaraháskóla Íslands. Lokaorð Guðrúnar segja segja mér að þar fer nemandi sem er brennandi í andanum að geta nú farið að láta að sér kveða með áunna fagmennsku að vopni til að bæta þennan heim. Þetta undirstrikar svo, að Ingvar er kennari sem nær árangri  og það verður heldur ekki metið til fjár.

Í fyrirlestri mínum kom Sigurður Fjalar Jónsson við sögu, meðal annarra ágætismanna, í þeim tilgangi að kynna kennara sem bloggar mikið um nám og kennslu í tengslum við tölvunotkun en ég er einmitt með þessu bloggi mínu að vekja athygli skjólstæðinga minna á þeim möguleikum sem felast í því sem oftast gengur undir nafninu Vefur 2. Sigurður þessi er, í hópi hérlendra kennara, einn ástríðufullyllsti aðdáandi svokallaðra opinna lausna (Open Source) Hann er svo heilagur að ég myndi aldrei voga mér að gera þessa sannleiksást hans að auglýsingaskrumi í þágu auðvaldsins (af gefnu tilefni þann 4. sept. eftir Kastljós Sjónvarpsins).
Fyrir þá sem nenna að hlusta á fyrirlestur minn um rafrænar ferilmöppur er til hægðarauka bent á eftirfarandi vefsetur sem gerð eru að umtalsefni:

Bluehost: Erlend vefþjónusta sem styður Vef 2. Hún er mjög öflug og ein sú allra ódýrasta á markaði fyrir sambærielga þjónustu.

1984.is: íslensk vefþjónusta sem einnig styður Vef 2

Er nú dagur að kveldi kominn.