Um streymimiðlun
“Með nýlegri tækni á lýðnetinu geta notendur flutt niður eða sótt bæði hljóðefni og myndefni og spilað það í tölvu sinni jafnóðum og það berst að. Á ensku er þetta fyrirbæri kallað streaming sem liggur beint við að kalla streymi á íslensku. Streaming media verður þá á íslensku streymimiðlun. Video streaming og audio streaming jafngilda íslensku heitunum myndstreymi og hljóðstreymi. Og streaming video og streaming audio, streaming sound jafngilda heitunum streymimynd og streymihljóð”.
Streymimiðlun leysir þann vanda vefnotenda það þurfa að bíða lengi eftir að þungar skrá hlaðast niður af vefþjóni til notandans. Þetta á við um t.d. hljóðskrár og kvikmyndir sem geta verið býsna þungar. (Allar sýringarmyndir hér eru fengnar frá University of Visconsin)
Skýringarmyndin hér að neðan sýnir að notandi þarf að bíða þar til 10 MB hafa að fullu hlaðist í minni tölvu áður en nokkuð gerist og þetta er auðvitað óviðunandi.

Streymimiðlun fer í grundvallaratriðum fram með tvennum hætti:
-
Real stream (Raunstreymi). Hér er notaður sérstakur vefþjónn, svokallaður Streaming Server. Hljóðið eða kvikmyndin hleðst niður í minni tölvunnar í hæfilegum bútum (buffering). Meðan tiltekinn bútur spilast er sá næsti að hlaðast inn og þegar hann tekur við eyðist hinn fyrri. Í minni tölvunnar er því aldrei meira en einn bútur í einu enginn möguleiki á að vista efnið á tölvu notanda. Streymimiðlun, t.d. í útvarpi og sjónvarpi fer fram með þessum hætti (sjá mynd hér að neðan).

- Progressive Download (Safnmiðlun) Streymimiðlun af þessu tagi fer fram með hefðbundnum vefþjóni en er að öðru leyti frábrugðin raunstraumi að efnið (hljóðskrá eða kvikmynd) hleðst að lokum á harðan disk á tölvu notanda og þaðan má koma henni fyrir til frekari varðveislu. Streymimiðlun með upptökum í Camtasia, sem mikið eru notaðar í Kennaraháskóla Íslands, fer fram með þessum hætti en Camtasia sér þá um að kóða efnið. Hljóðskrár og kvikmyndir má annars kóða fyrir Progressive Download með Windows media Encoder (sjá skjásýningu um þetta efni sem unnin var með Camtasia). Hljóðskrár (WAV), sem þannig eru kóðaðar, fá sjálfkrafa eftirnafnið WMA. Settu aldrei *.WAV skrá á Netið án þess að kóða hana fyrst. Það má líka gera með því að vista hljóðskrár sem *.mp3 sem er ágæt þjöppun.

Margvísleg tækni er notuð fyrir hljóð- og myndstrauma á Netinu. Stærstir í þessum efnum eru sýndir á myndinni hér að neðan og svo má ekki gleyma Flash tækninni. Nú ryður sér til rúms ný tækni sem gerir kleift að miðla hágæða kvikmyndum yfir ADSL línur og gerast þannig áskrifandi að netsjónvörpum. Líklega er það handan við hornið að venjuleg sjónvörp heyri sögunni til og sjónvarpsefni verði þess í stað miðlað um tölvur á neti með mikla bandvídd. Með því að skoða ítarefnið hér til hliðar má e.t.v. fá hugmyndir um það hvað framtíðin ber í skauti sér hvað snertir streymimiðlun.

Á DoWire.Org er að finna ágætan samanburð á því sem her hefur verið lýst.