Um mig
Ég heiti Þorvaldur Pálmason og starfa sem verkefnastjóri í Menntasmiðju Kennaraháskóla Íslands. Hlutverk þessa vefs er að vera vettvangur um upplýsingatækni í skólastarfi, einkum á sviði fjarkennslu. Annað markmið með opnun þessa vefs er að prófa einfalt vefumsjónarkerfi með það í huga að veita kennurum í skólanum leiðsögn um notkun þess í þágu starfs síns í stað þess að þurfa að læra á flókin vefsíðugerðarforrit eins og FrontPage til að halda úti heimasíðu.