Helsta einkenni í tæknilegri umgjörð fjarkennslu frá aldamótum er vísast notkun námsumsjónarkerfa. Forverar þeirra voru sjálfstæðir gagnagrunnstengdir umræðuvefir, sem voru angi af brautryðjendastarfi Íslenska menntanetsins í þágu fjarkennslu á síðustu árum þess innan veggja Kennaraháskóla Íslands. Webboard var þekktast þessara kerfa og var notað almennt í fjarkennslu síðustu árin fyrir aldamót. Þetta var viðbót við póstlista sem þá voru í notkun og kennsluvefi sem notaðir voru sem upplýsingaveitur og til að miðla kennslugögnum. Webboard var mjög öflugt umræðukerfi en varð að víkja fyrir námsumsjónarkerfum sem halda utan um flesta þætti náms og kennslu með fjarkennslusniði, ekki einungis umræður og önnur samskipti heldur einnig skráningu, alla umsýslu og miðlun gagna.

Námsumsjónarkerfin eru eins konar framhald af þróun gagnagrunnstengdra vefja í þágu skólastarfs og eru allt í senn, vefur, gagnagrunnur og rými fyrir námskeiðið sjálft með öllu sem fylgir og fylgja ber. Misjafnt getur verið hvað við er átt þegar talað er um námsumsjónarkerfi og þau eru nefnd  ýmsum nöfnum eftir því hver megintilgangur þeirra er. Hugtakið LMS (Learning Management System) er algengt en þá er fremur átt við ýmsa sjálfvirkni er snertir ekki inntak námsins, m.a. skráningu, gagnagrunnstengdar upplýsingar um virkni, námsmat, greiðslustöðu o.fl.  Ugla, (https://ugla.khi.is) er dæmi um svona kerfi, sem einnig er að hluta einfalt námsumsjónarkerfi. Stefanía (http://stefania.unak.is/stefania/) er umsýslukerfi í Háskólanum á Akureyri.  Háskólinn í Reykjavík notar MySchool kerfið sem þróað hefur verið í samvinnu við fyrirtækið Betri lausnir  Kerfið er í raun safn kerfa er saman mynda heildarlausn fyrir skóla.  Ugla er reyndar í þeim flokki líka þótt kerfin séu færri og útfærslan með öðrum hætti. Þá má nefna  Háskólann á Bifröst sem notar kerfi sem heitir Námskjár . Hugbúnaðar- og vefþjónustufyrirtækið Nepal hefur þróað kerfið í samvinnu við skólann, Landbúnaðarháskóla Íslands og Fjöltækniskóla Íslands. Vefumsjónarkerfið Nepal er jafnframt notað til viðhalds og þróunar á vefsetrum þessarra skóla.

Kennaraháskólinn hefur lengsta reynslu af  fjarkennslu af háskólum hérlendis og hefur því orðið að aðlaga sig að margvíslegum tæknilegum aðstæðum. Frá árinu 2000 hefur almennt verið notast við sérhæfðar lausnir í þágu sjálfrar kennslunnar. Hér er átt  við svokölluð Course Management Systems (sjá Edu Tools). WebCT er í þeim flokki námsumsjónarkerfa sem telja má sérhæfð fyrir nám og kennslu með fjarkennslusniði. Misjafnt er hvaða heiti þessi kerfi bera á íslensku, fjarkennslukerfi segja sumir eða einfaldlega bara kennslukerfi. Aðrir tala um fjarnámskerfi eða námsumsjónarkerfi. Í nýlegri skýrslu um fjarkennslu á háskólastigi er notað orðið  vefnámsumsjónarkerfi.